
Articles
-
2 days ago |
visir.is | Oddur Ævar Gunnarsson
Nýr pallur, heitur pottur og ný eldhúsinnrétting. Þetta eru allt hlutir sem skipta máli í brunabótamati en langflestir hafa ekki fyrir því að sækja um uppfært brunabótamat eftir framkvæmdir heima fyrir.
-
2 days ago |
visir.is | Oddur Ævar Gunnarsson
Skýrslan var birt í dag en þar kemur fram að viðhalda þurfi aðhaldi í ríkisfjármálum, bæta menntun og efla raforkuframleiðslu til þess að tryggja áframhaldandi hagvöxt og lífsgæði á Íslandi. Þannig telur stofunin stöðu raforkumála og menntamála hér á landi sérstakt áhyggjuefni. Er sérstaklega vikið að íslenskufærni nema af erlendu bergi brotnu, en mikill munur er á færni þeirra og innflytjenda í öðrum OECD löndum og er lagt til að skipulögð íslenskukennsla verði aukin til muna.
-
3 days ago |
visir.is | Oddur Ævar Gunnarsson
Þann 3. júní síðastliðinn samþykkti bæjarstjórn Akureyrar að færa starfsemi félagsmiðstöðva bæjarins alfarið færð undir stjórn grunnskóla bæjarins en starfsemin hafði áður verið rekin sérstaklega undir merkjum félagsstöðvanna. Þrettán starfsmönnum var sagt upp en tíu boðin störf undir nýju fyrirkomulagi. Fulltrúi Ungmennaráðs Akureyrarbæjar segir barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna þverbrotinn í málinu, ekkert samráð hafi verið haft við ungmenni sem óttist að starfsemi félagsstöðva muni rýrast mikið.
-
3 days ago |
visir.is | Oddur Ævar Gunnarsson
Það var í mars á þessu ári sem ungverska þingið samþykkti viðauka ríkisstjórnar Viktors Orban við stjórnarskrá landsins þar sem samkomur hinsegin fólks í landinu voru bannaðar, undir þeim formerkjum að þær brytu gegn lögum um barnavernd. Á ári hverju í júnímánuði fer fram gleðigangan Búdapest Pride og hyggjast skipuleggjendur halda göngunni til streitu næstu helgi þrátt fyrir bannið en viðurlög við þátttöku eru fjársektir.
-
6 days ago |
visir.is | Oddur Ævar Gunnarsson
Patrekur Andrés Axelsson greindist nítján ára gamall með arfgengan augnsjúkdóm og er í dag með um fimm prósent sjón. Hann hefur aldrei látið sjúkdóminn stoppa sig og hefur meðal annars verið fulltrúi Íslands á Ólympíuleikum fatlaðra og klárað nám í rafvirkjun. Nú hefur Patrekur lokið mastersnámi í sjúkraþjálfun fyrstur lögblindra einstaklinga en hann segist hafa mætt fordómum og mótlæti stjórnenda læknadeildar Háskóla Íslands í náminu. Tveimur mánuðum eftir að hann hóf nám var hann boðaður á fund.
Try JournoFinder For Free
Search and contact over 1M+ journalist profiles, browse 100M+ articles, and unlock powerful PR tools.
Start Your 7-Day Free Trial →